Réttindabreyting í Hlutfallsdeild frá 1. desember 2019
19.11.2019
Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur með bréfi dags. 24. október staðfest þær samþykktarbreytingar sem samþykktar voru á ársfundi Lífeyrissjóðs bankamanna 30. apríl 2019. Breytingarnar fela í sér lækkun á árlegum réttindastuðli Hlutfallsdeildar úr 1,92% í 1,82% sem samsvarar um 5,2% lækkun á lífeyri. Jafnframt var samþykkt að fella út ákvæði um dánarbætur í báðum deildum. Kemur réttindabreytingin nú til framkvæmda og hefur áhrif á lífeyrisgreiðslur frá og með 1. desember 2019.
Landsréttur fellir úr gildi úrskurð um frávísun
06.06.2019
Landsréttur hefur fellt úr gildi úrskurð héraðsdóms frá 24. apríl 2019 er varðar frávísun þriggja af fjórum kröfuliðum í máli Hlutfallsdeildar Lífeyrissjóðs bankamanna gegn aðildarfyrirtækjum og íslenska ríkinu en stjórn lífeyrissjóðsins kærði þann úrskurð til Landsréttar þann 7. maí s.l.
Úrskurður Héraðsdóms kærður til Landsréttar
21.05.2019
Stjórn Lífeyrissjóðs bankamanna hefur ákveðið að kæra til Landsréttar úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur frá 24. apríl um frávísun (hlekkur á fyrri frétt) á 3 af 4 kröfuliðum í máli Lífeyrissjóðs bankamanna gegn aðildarfyrirtækjum og íslenska ríkinu vegna Hlutfallsdeildar. Vænta má niðurstöðu í kærumálinu fyrri hluta júní mánaðar.
Niðurstöður ársfundar 2019
02.05.2019
Ársfundur Lífeyrissjóðs bankamanna var haldinn á Icelandair Hotel Reykjavík Natura þann 30. apríl slíðastliðinn og hófst hann kl. 17:15.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur um frávísun að hluta
24.04.2019
Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurðaði í dag að vísa frá 3 af 4 kröfuliðum í máli Lífeyrissjóðs bankamanna gegn aðildarfyrirtækjum og íslenska ríkinu vegna Hlutfallsdeildar. Hins vegar var hafnað að vísa frá þriðju varakröfu sjóðsins um að viðurkennt verði að íslenska ríkið beri ábyrgð á lífeyrisskuldbindingum þeirra sjóðfélaga Hlutfallsdeildar sem voru starfsmenn Landsbanka Íslands.
Tillögur til breytinga á samþykktum fyrir ársfund 2019
23.04.2019
Fyrirliggjandi eru tillögur stjórnar til breytinga á samþykktum Lífeyrissjóðs bankamanna fyrir ársfund sjóðsins sem haldinn verður þann 30. apríl 2019.
Afkoma 2018
02.04.2019
Á meðfylgjandi yfirliti má sjá yfirlit yfir upplýsingar um starfsemi á árinu 2018.
Sjóðfélagafundur Hlutfallsdeildar
03.12.2018
Sjóðfélagafundur Hlutfallsdeildar var haldinn miðvikudaginn 28. nóvember s.l. á Icelandair Hotel Reykjavík Natura. Um var að ræða kynningarfund fyrir sjóðfélaga Hlutfallsdeildar.
Lífeyrissjóður bankamanna stefnir aðildarfélögum og Íslenska ríkinu vegna Hlutfallsdeildar
27.09.2018
Lífeyrissjóður bankamanna hefur birt aðildarfélögum Hlutfallsdeildar og Íslenska ríkinu stefnu vegna þess tjóns sem deildin hefur orðið fyrir í tengslum við ófullnægjandi uppgjör á skuldbindingum árið 1997.
Ný stjórn Lífeyrissjóðs bankamanna
22.06.2018
Ný stjórn Lífeyrissjóðs bankamanna kom saman til fyrsta fundar í dag. Á fundinum var Ari Skúlason kjörinn formaður stjórnar og Ingólfur Guðmundsson kjörinn varaformaður.