Lífeyrissjóður bankamanna

Lífeyrissjóður bankamanna tryggir sjóðfélögum, eftirlifandi mökum og börnum þeirra lífeyri samkvæmt samþykktum sjóðsins. Sjóðurinn er sjálfstæð stofnun með eigin stjórn og starfar undir opinberu eftirliti, líkt og aðrir lífeyrissjóðir á Íslandi.

Hlutverk sjóðsins

Lífeyrissjóður bankamanna tryggir sjóðfélögum, eftirlifandi mökum og börnum þeirra lífeyri samkvæmt samþykktum sjóðsins. Sjóðurinn er sjálfstæð stofnun með eigin stjórn og starfar undir opinberu eftirliti, líkt og aðrir lífeyrissjóðir á Íslandi.

Sjóðurinn skiptist í tvær deildir: Hlutfallsdeild og Aldursdeild. Allir starfsmenn aðildarfyrirtækja sem hafa náð 16 ára aldri verða sjóðfélagar og greiða iðgjöld meðan þeir starfa hjá viðkomandi fyrirtæki. Sjóðfélagar sem hætta störfum geta óskað eftir að halda áfram greiðslum í Aldursdeild.

Beint að efninu

Eftirlaun

Meginhlutverk Lífeyrissjóðs bankamanna er að tryggja sjóðfélögum örugga framtíð og greiða þeim eftirlaun í samræmi við áunnin réttindi.

Lesa meira

Örorkulífeyrir

Örorkulífeyrir veitir sjóðfélögum fjárhagslegan stuðning ef þeir verða ófærir um að gegna starfi sínu vegna varanlegrar skerðingar á starfsgetu.

Lesa meira

Maka- og barnalífeyrir

Makalífeyrir tryggir eftirlifandi maka og börnum fjárhagslegan stuðning eftir andlát sjóðfélaga.

Lesa meira

Lífeyrissjóðslán

Lífeyrissjóður bankamanna býður sjóðfélögum hagstæð lán til fasteignakaupa eða endurfjármögnunar.

Lesa meira

Ársfundur 2026 og rafrænt stjórnarkjör

20. apríl 2026

Ársfundur Lífeyrissjóðs bankamanna verður haldinn miðvikudaginn 27. maí næstkomandi kl. 17:00 á Hótel Reykjavík Grand, Sigtúni 28. Vakin er athygli á að viku fyrir ársfund fer fram rafræn kosning þriggja stjórnarmanna og skulu tilkynningar um framboð, ásamt upplýsingum um starfsferil, berast skriflega til skrifstofu sjóðsins eigi síðar en tveimur vikum fyrir ársfund skv. 2. grein samþykkta sjóðsins. Verða frambjóðendur kynntir á heimasíðu sjóðsins eftir að framboðsfresti lýkur þann 13. maí.

Launaseðlar komnir inná sjóðfélagavef

1. apríl 2026

Lífeyrisþegum er bent á að rafræna launaseðla má finna á sjóðsfélagavef undir flipanum "skjöl".

Yfirlit sjóðfélaga aðgengileg á sjóðfélagavel

1. október 2025

Nýtt yfirlit yfir iðgjaldagreiðslur og stöðu áunninna réttinda 2025 er nú aðgengilegt undir flipanum "skjöl" á sjóðsfélagavef

Niðurstaða ársfundar 2025

28. maí 2025

Ársfundur Lífeyrissjóðs bankamanna var haldinn á Hótel Reykjavík Grand þann 27. maí síðastliðinn  og hófst hann kl. 17:00. Fundarstjóri var kjörinn Hinrik Greipsson og ritari fundarins var Pálmi Rögnvaldsson.