Matsbeiðni samþykkt
12.01.2017
Í dag kvað Héraðsdómur Reykjavíkur upp úrskurð þar sem fallist er á beiðni Lífeyrissjóðs bankamanna um að dómkvaddur verði matsmaður til þess að meta tiltekin atriði í tengslum við uppgjör á ábyrgð aðildarfélaga á skuldbindingum Hlutfallsdeildar frá 1998.
Lífeyrissjóðurinn leiðréttir lán vegna rangrar vísitölu
15.11.2016
Stjórn Lífeyrissjóðs bankamanna hefur ákveðið að leiðrétta þá hækkun á höfuðstól verðtryggðra sjóðfélagalána sem tekin voru á tímabilinu 1. maí til 31. október, meðan neysluvísitalan var rangt reiknuð af Hagstofunni vegna mistaka. Með þessu vill lífeyrissjóðurinn að eigin frumkvæði leitast við að tryggja að sjóðfélagar, sem tóku verðtryggð lán á umræddu tímabili, verði ekki fyrir tjóni vegna þessara mistaka Hagstofunnar.
Lífeyrissjóðurinn mun á næstu vikum, reikna út og greiða mismuninn inn á höfuðstól lánanna. Fyrirséð er að einhvern tíma mun taka að framkvæma leiðréttinguna en lántakendur munu fá tilkynningu um innborgunina þegar að henni kemur.
Matsbeiðni Lífeyrissjóðs bankamanna mótmælt
24.10.2016
Matsbeiðni Lífeyrissjóðs bankamanna, sem lögð var fram til að staðreyna fjárhagslegt umfang á tjóni sem sjóðfélagar Hlutfallsdeildar telja sig hafa orðið fyrir, var mótmælt af ríkislögmanni auk þriggja annarra matsþola, Landsbankanum, RB og Landsvaka, við fyrirtöku hjá Héraðsdómi Reykjavíkur á föstudag og þess krafist að beiðninni verði hafnað.
Lífeyrissjóður bankamanna leggur fram matsbeiðni vegna Hlutfallsdeildar
19.09.2016
Mikil óánægja hefur verið meðal sjóðfélaga Hlutfallsdeildar Lífeyrissjóðs bankamanna um nokkurt skeið vegna forsendubrests á samkomulagi um breytingar á reglugerð sjóðsins sem tók gildi 1. janúar 1998. Samkomulagið var gert í tengslum við breytingu á rekstrarformi Landsbanka Íslands úr ríkisviðskiptabanka í hlutafélagabanka og fól í sér að ákvæði um ábyrgð aðildarfyrirtækja á skuldbindingum var fellt niður og hún gerð upp miðað við tilteknar tryggingafræðilegar forsendur. Var sjóðnum skipt upp og stofnuð svokölluð Hlutfallsdeild fyrir þá starfsmenn sem hófu störf fyrir 1. janúar 1998 og þá sjóðfélaga sem hættir voru störfum við breytinguna. Sjóðfélagar Hlutfallsdeildar telja að grundvöllur samkomulagsins hafi raskast verulega til tjóns fyrir lífeyrissjóðinn og sjóðfélaga. Voru réttindi sjóðfélaga í Hlutfallsdeild m.a. skert um 9,65% árið 2014, en eftir sem áður er tryggingafræðileg staða deildarinnar m.v. úttekt 2015 neikvæð um 2,6%.
Á síðasta ári námu lífeyrisgreiðslur Hlutfallsdeildar samtals 2.190 milljónum króna til alls 946 lífeyrisþega.
Niðurstöður ársfundar 2016
06.04.2016
Ársfundur Lífeyrissjóðs bankamanna var haldinn á Icelandair Hotel Reykjavík Natura þann 6. apríl slíðastliðinn og hófst hann kl. 17.
Ávöxtun og afkoma 2015
17.03.2016
Stjórn Lífeyrissjóðs bankamanna hefur staðfest ársreikning sjóðsins fyrir árið 2015.
Ársfundur 2016
25.02.2016
Ársfundur Lífeyrissjóðs bankamanna verður haldinn miðvikudaginn 6. apríl næstkomandi kl. 17.00. Fundurinn verður haldinn á Icelandair Hotel Reykjavík Natura, Þingsal 2-3.
Veðhlutfall sjóðfélagalána hækkað í 75%
25.11.2015
Stjórn Lífeyrissjóðs bankamanna hefur ákveðið að breyta útlánareglum sjóðfélagalána þannig að hámarks veðhlutfall er hækkað í 75% af kaupverði eða matsverði íbúðarhúsnæðis. Þá er hámarks lánsréttur hækkaður í 35.000.000 og nær nú til allra þeirra sem eiga réttindi hjá sjóðnum.
Sjóðfélagafundur Hlutfallsdeildar
21.09.2015
Sjóðfélagafundur Hlutfallsdeildar Lífeyrissjóðs bankamanna verður haldinn miðvikudaginn 7. október nk. kl. 17:00 á Icelandair Hotel Reykjavík Natura, þingsal 2.
Framkvæmdastjóraskipti
25.08.2015
Nýr framkvæmdastjóri, Tryggvi Tryggvason, hefur verið skipaður hjá Lífeyrissjóði bankamanna og mun hann hefja störf í september 2015.
Ársfundur 2015
26.03.2015
Ársfundur Lífeyrissjóðs bankamanna var haldinn á Icelandair Hótel Reykjavík Natura 25. mars 2015.
Uppgjör og ávöxtun ársins 2014
17.03.2015
Uppgjöri sjóðsins fyrir árið 2014 er lokið. Raunávöxtun Hlutfallsdeildar á árinu var 4,42% og Aldursdeildar 5,06%.