Ársuppgjör 2017 - góð markaðsávöxtun
27.03.2018
Ársuppgjör Lífeyrissjóðs bankamanna fyrir árið 2017 liggur nú fyrir og gekk rekstur sjóðsins vel á árinu. Hrein nafnávöxtun Hlutfallsdeildar nam 6,40% á árinu 2017 sem samsvarar 4,6% hreinni raunávöxtun samanborið við 3,3% á árinu 2016. Í Aldursdeild nam hrein nafnávöxtun 5,1% sem samsvarar 3,3% hreinni raunávöxtun samanborið við -0,12% á árinu 2016.
Þegar birt ávöxtun lífeyrissjóða er borin saman er mikilvægt að hafa í huga áhrif mismunandi aðferða sem beitt er við mat á skuldabréfum. Lífeyrissjóður bankamanna metur meirihluta skuldabréfa beggja deilda á afskrifuðu kostnaðarverði þar sem tekin tekin hefur verið ákvörðun um að halda bréfunum til gjalddaga. Væru þessi skuldabréf færð til eignar á markaðsverði væri bókfært verð þeirra 4.654 milljónum króna hærra í Hlutfallsdeild og 2.449,2 milljónum króna hærra í Aldursdeild og hrein eign til greiðslu lífeyris hærri sem því nemur. Að sama skapi væri reiknuð raunávöxtun umtalsvert hærri ef skuldabréf væru metin á markaðsverði, eða 8,2% í stað 4,58% í Hlutfallsdeild og 6,2% í stað 3,31% í Aldursdeild.
Sjóðfélagalán með föstum vöxtum
30.12.2017
Stjórn Lífeyrissjóðs bankamanna hefur ákveðið að frá áramótum verði ný sjóðfélagalán veitt með föstum vöxtum sem haldast óbreyttir út lánstímann.
Matsgerð staðfestir forsendubrest
04.12.2017
Lífeyrissjóður bankamanna (Hlutfallsdeild) hefur orðið af að minnsta kosti 3 milljörðum króna vegna uppgjörs árið 1997 sé miðað við raunþróun forsendna sem lágu uppgjörinu til grundvallar. Dómkvaddur matsmaður hefur skilað matsgerð um greiðslur aðildarfélaga Eftirlaunasjóðs starfsmanna Landsbankans og Seðlabankans (nú Lífeyrissjóðs bankamanna) vegna samkomulags frá árinu 1997 um uppgjör ábyrgðar þeirra á skuldbindingum lífeyrissjóðsins, sem gert var vegna fyrirhugaðrar hlutafjárvæðingar ríkisbankanna.
Aukið framlag í lífeyrissjóð
06.07.2017
Niðurstöður ársfundar 2017
28.04.2017
Ársfundur Lífeyrissjóðs bankamanna var haldinn á Icelandair Hotel Reykjavik Natura þann 26. apríl síðastliðinn og hófst kl. 17. Fundarstjóri var kjörin Hinrik Greipsson og ritari fundarins var Pálmi Rögnvaldsson. Fundargerð ársfundar verður aðgengileg hér innan skamms.
Ársuppgjör 2016
28.03.2017
Ársuppgjör Lífeyrissjóðs bankamanna fyrir árið 2016 liggur nú fyrir og er ávöxtun deilda ólík og endurspeglar ólíka fjárfestingarstefnu þeirra. Hrein nafnávöxtun Hlutfallsdeildar nam 5,3% á árinu 2016 sem samsvarar 3,3% hreinni raunávöxtun samanborið við 4,5% á árinu 2015. Í Aldursdeild nam hrein nafnávöxtun 1,9% sem samsvarar -0,12% hreinni raunávöxtun samanborið við 7,8% á árinu 2015.
Lántökugjald sjóðfélagalána verður föst krónutala
28.03.2017
Lántökugjald við töku sjóðfélagalána hjá Lífeyrissjóði bankamanna er föst krónutala, eða 52.500 kr. frá og með 28. mars.
Ársfundur 2017
21.03.2017
Ársfundur Lífeyrissjóðs bankamanna verður haldinn miðvikudaginn 26. apríl næstkomandi kl. 17.00. Fundurinn verður haldinn á Icelandair Hotel Reykjavík Natura, Þingsal 2-3.
Upplýsingar um lífeyrismál á nýjum vef
01.03.2017
Opnaður hefur verið nýr upplýsingavefur á vegum Landssamtaka lífeyrissjóða þar sem finna má fjölbreyttar upplýsingar og fróðleik um allt sem tengist lífeyrismálum. Þá hafa Landssamtökin jafnframt opnað facebook síðu undir sama nafni.
Matsbeiðni staðfest af Hæstarétti
23.02.2017
Hæstiréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur frá 12. janúar þar fallist var á beiðni Lífeyrissjóðs bankamanna um dómkvaðningu matsmanns. Íslenska ríkið hafði kært þann úrskurð og krafist þess að matsbeiðninni yrði hafnað en ekki var fallist á þá kröfu.
Íslenska ríkið kærir úrskurð til Hæstaréttar
28.01.2017
Þann 25. janúar s.l. barst Hæstarrétti kæra frá ríkislögmanni þar sem úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur frá 12. janúar er skotið til Hæstaréttar, en í þeim úrskurði féllst Héraðsdómur á beiðni Lífeyrissjóðs bankamanna um dómkvaðningu matsmanns.