Ársfundur 2015
26.03.2015
Ársfundur Lífeyrissjóðs bankamanna var haldinn á Icelandair Hótel Reykjavík Natura 25. mars 2015.
Uppgjör og ávöxtun ársins 2014
17.03.2015
Uppgjöri sjóðsins fyrir árið 2014 er lokið. Raunávöxtun Hlutfallsdeildar á árinu var 4,42% og Aldursdeildar 5,06%.
3. tbl. Vefflugunnar er komið út
19.12.2014
Í ritinu Vefflugan er að finna margvíslegan fróðleik um lífeyrismál. Út er komið 3. tbl. Sjá nánar á vef Vefflugunnar: vefflugan.is
Réttindabreyting í Hlutfallsdeild
10.12.2014
Fjármálaráðuneytið hefur nú með bréfi til Lífeyrissjóðs bankamanna, dags. 28. nóvember 2014, staðfest breytingar á samþykktum sjóðsins. Réttindabreyting Hlutfallsdeildar kemur nú til framkvæmda og hefur áhrif á lífeyrisgreiðslur frá og með janúar 2015.
2. tbl. Vefflugunnar er komið út
14.10.2014
Í ritinu Vefflugan má finna margvíslegan fróðleik um lífeyrismál. Út er komið 2. tölublað. Sjá nánar á vef Vefflugunnar: http://vefflugan.is/
Niðurstaða athugunar á lánveitingum Lífeyrissjóðs bankamanna til einstaklinga
16.09.2014
Fjármálaeftirlitið hefur framkvæmt athugun á lánveitingum Lífeyrissjóðs bankamanna til einstaklinga. Athugunin var framkvæmd á öðrum ársfjórðungi 2014. Að mati Fjármálaeftirlitsins eru lánveitingar lífeyrissjóðsins í samræmi við gildandi lög, fjárfestingarheimildir og lánareglur Lífeyrissjóðs bankamanna.
Sjá nánar á vef FME, slóð:
http://www.fme.is/utgefid-efni/frettir-og-tilkynningar/gagnsaeistilkynningar/nr/2133
Raunhæf dæmi um áhrif réttindabreytingar í Hlutfallsdeild
13.05.2014
Seðlabanki Íslands bauð starfsmönnum sínum sem nú greiða iðgjöld til Hlutfallsdeildar sem og lífeyrisþegum til kynningar á áhrifum fyrirhugaðrar réttindabreytingar. Framkvæmdastjóri Lífeyrissjóðs bankamanna flutti þar erindi og fór yfir glærur sem ættu að gagnast öllum sjóðsfélögum og lífeyrisþegum Hlutfallsdeildar til skilnings.
Ársfundur 2014
28.03.2014
Ársfundur Lífeyrissjóðs bankamanna var haldinn á Icelandair Hótel Reykjavík Natura 26. mars 2014.
Uppgjör og ávöxtun ársins 2013
20.03.2014
Uppgjöri sjóðsins fyrir árið 2013 er lokið. Raunávöxtun Hlutfallsdeildar á árinu var 4,45% og Aldursdeildar 5,19%.
Tillögur til breytinga á samþykktum 2014
24.02.2014
Fyrirliggjandi eru tillögur stjórnar Lífeyrissjóðs bankamanna til breytinga á samþykktum sjóðsins, sem lagðar verða fram á ársfundi sjóðsins þann 26. mars 2014.
Lífeyrisgátt, Gott að vita og opið hús
30.10.2013
Opnaður hefur verið aðgangur að Lífeyrisgáttinni. Fræðusluvefurinn Gott að vita hefur verið uppfærður og opið hús verður fyrir sjóðsfélaga Lífeyrissjóðs bankamanna í húsakynnum okkar að Skipholti 50 b, þann 5. nóvember milli kl. 15 og 18.
Framkvæmdastjóraskipti
23.10.2013
Framkvæmdastjóri sjóðsins, Sigtryggur Jónsson, mun láta af störfum í lok árs. Nýr framkvæmdastjóri hefur verið skipaður, Ólafur Kr. Valdimarsson.