Fréttir

Dómkvaðning matsmanns – þrjár matsbeiðnir

09.11.2020

Þann 30. október var í Héraðsdómi Reykjavíkur dómkvaddur matsmaður til að leggja mat á matsspurningar samkvæmt þremur matsbeiðnum í máli Lífeyrissjóðs bankamanna gegn aðildarfyrirtækjum og íslenska ríkinu. Um er að ræða matsbeiðni með níu spurningum frá Reiknistofu bankanna, sameiginlega matsbeiðni frá íslenska ríkinu og Seðlabankanum með 21 spurningu og matsbeiðni frá lífeyrissjóðnum með þremur spurningum. Í dómkvaðningunni er lagt fyrir matsmann að ljúka matinu eigi síðar en 15. janúar 2021.

Lesa meira

Niðurstöður ársfundar 2020

11.06.2020

Ársfundur Lífeyrissjóðs bankamanna var haldinn á Hilton Reykjavík Nordica þann 10. júní slíðastliðinn  og hófst hann kl. 17:00.

Lesa meira

Frambjóðendur til stjórnar

28.05.2020
Ársfundur Lífeyrissjóðs bankamanna verður haldinn miðvikudaginn 10. júní kl. 17:00 á Hilton Reykjavík Nordica.

Lesa meira

Ársfundur 2020 - breyttur fundartími og fundarstaður

12.05.2020

Lesa meira

Niðurstaða vettvangsathugunar

05.05.2020

Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands (Fjármálaeftirlitið) framkvæmdi vettvangsathugun hjá Lífeyrissjóði bankamanna í desember 2019 þar sem skoðað var innra eftirlitskerfi og stjórnarhættir sjóðsins.

Lesa meira

Ársfundi frestað um óakveðinn tíma

15.04.2020

Ákveðið hefur verið að fresta ársfundi Lífeyrissjóðs bankamanna sem halda átti miðvikudaginn 29. apríl næstkomandi. Þetta er gert í ljósi gildandi samkomubanns stjórnvalda vegna COVID-19. Stjórn sjóðsins mun taka ákvörðun um  nýjan fundartíma þegar aðstæður leyfa og verður  það auglýst sérstaklega.

Lesa meira

Skrifstofa Lífeyrissjóðs bankamanna lokuð fyrir heimsóknum vegna COVID-19

27.03.2020

Vegna útbreiðslu COVID-19 og þeirra aðstæðna sem skapast hafa í samfélaginu vegna hennar hefur verið lokað fyrir heimsóknir á skrifstofu Lífeyrissjóðs bankamanna en starfsfólk sinnir áfram verkefnum sínum og þjónustu við sjóðfélaga. Er þetta gert með velferð sjóðfélaga og starfsfólks að leiðarljósi. 

Lesa meira

Ársfundur 2020 og stjórnarkjör

27.03.2020

Lesa meira

Afkoma 2019

27.03.2020

Lesa meira

Réttindabreyting í Hlutfallsdeild frá 1. desember 2019

19.11.2019

Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur með bréfi dags. 24. október staðfest þær samþykktarbreytingar sem samþykktar voru á ársfundi Lífeyrissjóðs bankamanna 30. apríl 2019. Breytingarnar fela í sér lækkun á árlegum réttindastuðli Hlutfallsdeildar úr 1,92% í 1,82% sem samsvarar um 5,2% lækkun á lífeyri. Jafnframt var samþykkt að fella út ákvæði um dánarbætur í báðum deildum. Kemur réttindabreytingin nú til framkvæmda og hefur áhrif á lífeyrisgreiðslur frá og með 1. desember 2019.

Lesa meira

Landsréttur fellir úr gildi úrskurð um frávísun

06.06.2019

Landsréttur hefur fellt úr gildi úrskurð héraðsdóms frá 24. apríl 2019 er varðar frávísun þriggja af fjórum kröfuliðum í máli Hlutfallsdeildar Lífeyrissjóðs bankamanna gegn aðildarfyrirtækjum og íslenska ríkinu en stjórn lífeyrissjóðsins kærði þann úrskurð til Landsréttar þann 7. maí s.l.

Lesa meira

Úrskurður Héraðsdóms kærður til Landsréttar

21.05.2019

Stjórn Lífeyrissjóðs bankamanna hefur ákveðið að kæra til Landsréttar úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur frá 24. apríl um frávísun (hlekkur á fyrri frétt) á 3 af 4 kröfuliðum í máli Lífeyrissjóðs bankamanna gegn aðildarfyrirtækjum og íslenska ríkinu vegna Hlutfallsdeildar. Vænta má niðurstöðu í kærumálinu fyrri hluta júní mánaðar.

Lesa meira