Frambjóðendur til stjórnar
19.04.2022
Ársfundur Lífeyrissjóðs bankamanna verður haldinn miðvikudaginn 27. aprí kl. 17:00 á Hilton Reykjavík Nordica.
Tillögur til breytinga á samþykktum fyrir ársfund 2022
19.04.2022
Fyrirliggjandi eru tillögur stjórnar til breytinga á samþykktum Lífeyrissjóðs bankamanna fyrir ársfund sjóðsins sem haldinn verður þann 27. apríl 2022.
Góð ávöxtun Aldursdeildar og jákvæð tryggingafræðileg staða
28.03.2022
Hrein nafnávöxtun Aldursdeildar var 16,01% á árinu 2021 sem samsvarar 10,64% raunávöxtun samanborið við 7,71% raunávöxtun á fyrra ári. Hjá Hlutfallsdeild, sem býr við mun lægra áhættustig, var hrein nafnávöxtun 9,35% sem samsvarar 4,30% raunávöxtun samanborið við 3,54% raunávöxtun á fyrra ári. Meðaltal hreinnar raunávöxtunar hjá Aldursdeild er 6,3% síðustu 5 ár og 4,0% hjá Hlutfallsdeild.
Dómsmáli áfrýjað til Landsréttar
13.12.2021
Lífeyrissjóður bankamanna hefur áfrýjað til Landsréttar dómi Héraðsdóms Reykjavíkur í máli sjóðsins gegn aðildarfyrirtækjum og íslenska ríkinu vegna samkomulags um uppgjör ábyrgðar á skuldbindingum Hlutfallsdeildar í aðdraganda hlutafélaga- og einkavæðingar Landsbankans 1998. Að mati sjóðsins er uppgjörið ósanngjarnt, forsendur þess hafa brostið og vegna þessa hafa gagnaðilar auðgast á kostnað sjóðsins og sjóðfélaga.
Héraðsdómur sýknar aðildarfyrirtæki og íslenska ríkið af kröfum Lífeyrissjóðs bankamanna
12.11.2021
Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði í dag aðildarfyrirtæki og íslenska ríkið af kröfum Lífeyrissjóðs bankamanna vegna Hlutfallsdeildar.
Lífeyrissjóður bankamanna eykur grænar fjárfestingar
02.11.2021
Lífeyrissjóður bankamanna hefur, ásamt 12 öðrum íslenskum lífeyrissjóðum, skrifað undir viljayfirlýsingu gagnvart alþjóðlegu samtökunum Climate Investment Coalition (CIC) um stórauknar fjárfestingar í verkefnum sem tengjast hreinni orku og umhverfisvænum lausnum fram til ársins 2030.
Niðurstöður ársfundar 2021
27.05.2021
Ársfundur Lífeyrissjóðs bankamanna var haldinn á Hilton Reykjavík Nordica þann 26. maí síðastliðinn og hófst hann kl. 17:00. Fundarstjóri var kjörinn Hinrik Greipsson og ritari fundarins var Pálmi Rögnvaldsson.
Tillögur til breytinga á samþykktum fyrir ársfund 2021
17.05.2021
Fyrirliggjandi eru tillögur stjórnar til breytinga á samþykktum Lífeyrissjóðs bankamanna fyrir ársfund sjóðsins sem haldinn verður þann 26. maí 2021.