Staða eigna Lífeyrissjóðs bankamanna
29.10.2008
Stjórn sjóðsins hefur falið Deloitte FAS ehf að gera ítarlega úttekt á stöðu eigna sjóðsins eftir hrun það sem orðið hefur á verðbréfamörkuðum. Þá er sjóðurinn í samstarfi innan Landssamtaka lífeyrissjóða um aðgerðir vegna þeirra aðstæðna sem skapast hafa.
Nýjar Samþykktir Lífeyrissjóðs bankamanna
30.03.2008
Fjármálaráðuneytið hefur staðfest nýjar samþykktir fyrir Lífeyrissjóð bankamanna.
Tillögur stjórnar Lífeyrissjóðs bankamanna samþykktar
01.10.2007
Framhaldsársfundur Lífeyrissjóðs bankamanna var haldinn 20. september sl. á Grand Hótel, Reykjavík. Fyrir fundinum lágu tillögur stjórnar til breytinga á samþykktum sjóðsins, sem varða aldurstengingu réttinda sjóðfélaga í stigadeild og voru þær samþykktar á fundinum.
Vextir á lánum til sjóðfélaga hækka í 5%
28.08.2007
Stjórn Lífeyrissjóðs bankamanna ákvað á fundi sínum þann 22. ágúst s.l. að hækka vexti á lánum til sjóðfélaga úr 4,6% í 5%, frá og með 1. september 2007
Helstu fréttir frá ársfundi Lífeyrissjóðs bankamanna
17.04.2007
Ársfundur Lífeyrissjóðs bankamanna var haldinn 12. apríl s.l. í Þingsal Hótels Loftleiða.
Aukaframlag aðildarfyrirtækja til Hlutfallsdeildar
15.03.2007
Í Ársreikningi sjóðsins vegna ársins 2006, sem nú er kominn hér á vefinn, segir m.a. frá samkomulagi sjóðsins við aðildarfyrirtækin, vegna vanda Hlutfallsdeildar.
Sjóðfélagafundur
02.11.2006
Fundur sjóðfélaga í Hlutfallsdeild Lífeyrissjóðs bankamanna var haldinn fimmtudaginn 2. nóvember 2006. Á dagskrá var tillaga um heimild stjórnar sjóðsins til þess að ganga til samkomulags við aðildarfyrirtæki deildarinnar, vegna þess vanda sem hún stendur frammi fyrir.
Samkomulag í höfn.
22.08.2006
Samkomulag hefur tekist milli stjórnar Lífeyrissjóðs bankamanna og aðildarfyrirtækja Hlutfallsdeildar sjóðsins, um að bæta stöðu sjóðsins, þannig að ekki þurfi að koma til skerðingar lífeyrisréttinda sjóðfélaga í Hlutfallsdeild LB. Einnig er rekstrargrundvöllur sjóðsins tryggður til framtíðar að því gefnu að ávöxtun hans bíði ekki hnekki.
Vextir útlána hækka
23.05.2006
Stjórn Lífeyrissjóðs bankamanna hefur ákveðið að hækka vexti af lánum til sjóðfélaga í 4,6% frá og með 1. júní n.k.
Frestun á málarekstri.
15.03.2006
Í ljósi stöðu viðræðna við Landsbanka Íslands hf., ákvað stjórn Lífeyrissjóðs bankamanna á fundi sínum þann 15. mars 2006 að fresta málarekstri á hendur bankanum og íslenska ríkinu.
Ekki verður af skerðingu réttinda í Hlutfallsdeild að svo stöddu
14.09.2005
Þann 14. september 2005 barst Lífeyrissjóði bankamanna bréf frá Fjármálaráðuneyti, en það var svar við bréfi sjóðsins frá 13. maí 2005 varðandi skerðingu á réttindum í hlutfallsdeild. Sjá nánar bréf Fjármálaráðuneytisins: