Ársfundur 2026 og rafrænt stjórnarkjör
Ársfundur Lífeyrissjóðs bankamanna verður haldinn miðvikudaginn 27. maí næstkomandi kl. 17:00 á Hótel Reykjavík Grand, Sigtúni 28. (Salur - Háteigur).
Dagskrá:
Venjuleg störf ársfundar skv. 6. gr. samþykkta sjóðsins
Rafrænt stjórnarkjör
Vakin er athygli á að viku fyrir ársfund fer fram rafræn kosning þriggja stjórnarmanna og skulu tilkynningar um framboð, ásamt upplýsingum um starfsferil, berast skriflega til skrifstofu sjóðsins eigi síðar en tveimur vikum fyrir ársfund skv. 2. grein samþykkta sjóðsins. Verða frambjóðendur kynntir á heimasíðu sjóðsins eftir að framboðsfresti lýkur þann 13. maí.
Rafræn kosning til aðalstjórnar hefst á vef sjóðsins kl. 17:00 miðvikudaginn 20. maí 2026 og stendur yfir til kl. 17:00 þriðjudaginn 26. maí 2026. Á þeim tíma munu sjóðfélagar einnig eiga þess kost að greiða atkvæði á skrifstofu sjóðsins á venjubundnum afgreiðslutíma.
Á ársfundinum fer jafnframt fram kosning þriggja stjórnarmanna til vara og teljast frambjóðendur til aðalstjórnar sem ekki ná kjöri einnig vera í kjöri til varastjórnar. Niðurstöður kosningar verða kynntar á fundinum skv. 2.5 gr. samþykkta.
Gert er ráð fyrir að sjóðfélagar sem ekki mæta á fundinn geti fylgst með fundinum í gegnum vefstreymi.