02.07.2012

Útreikningur launa í júlí

Í tengslum við útreikning launa fyrir júnímánuð var í einhverjum tilvikum dregin of lítil staðgreiðsla af launum. Skýring villunnar liggur í útreikningi á orlofi og staðgreiðslu af því. Þeir sem um ræðir hafa þá fengið ofgreitt í júní sem nemur þeirri staðgreiðslu sem ekki var dregin af. Þetta var svo leiðrétt við útreikning á launum í júlí og lækkar þá útborgun þess mánaðar sem nemur afdreginni staðgreiðslu. 
Lífeyrissjóðurinn biðst velvirðingar á þessu.  

Til baka í fréttir