Skýrsla úttektarnefndar.
Út er komin úttektarskýrsla þriggja manna nefndar sem skipuð var til að gera úttekt á fjárfestingarstefnu, ákvörðununum og lagalegu umhverfi lífeyrissjóðanna í aðdraganda bankahrunsins 2008. Skýrsluna má nálgast á vef Landssamtaka lífeyrissjóða. Skýrslan er í fjórum bindum og er umfjöllun um Lífeyrissjóð bankamanna að finna í bindi 3, kafla 16.
Í athugasemdum úttektarnefndar kemur fram að fjárfestingarstefna Lífeyrissjóðs bankamanna var á úttektarárunum mjög varfærin og íhaldssöm og að lítið tap sjóðsins má rekja til þeirra stefnu. Meginþungi fjárfestinga sjóðsins var í skuldabréfum með ríkisábyrgð og innlánum sem skilað hafa jafnri og öruggri ávöxtun um árabil. Tap kom þó fram í eftirfarandi eignaflokkum: Skuldabréfum banka og sparisjóða, skuldabréfum fyrirtækja, innlendum hlutabréfum, innlendum hlutabréfasjóðum, innlendum skuldabréfasjóðum og erlendum hlutabréfasjóðum.
Ofangreindir liðir mynda tap á árunum 2007 til 2010 samtals að fjárhæð 4.144 m.kr. Í hlutfalli af eignum sjóðsins í árslok 2009 er það 9,5%. Að meðaltali töpuðu lífeyrssjóðir um 27% eigna sinna í hruninu. Ef skoðuð er ávöxtun Hlutfallsdeildar og Aldursdeildar sjóðsins á bls. 14 í bindi 3 í skýrslunni má sjá að það var einungis árið 2008 sem raunávöxtun heils árs var neikvæð, um 1,6% í Hlutfallsdeild og 9,6% í Aldursdeild. Fimm ára meðalraunávöxtun áranna 2004-2009 var hins vegar jákvæð um 2,8% í Hlutfallsdeild og 2,5% í Aldursdeild.