16.05.2024

Frambjóðendur til stjórnar í rafrænu stjórnarkjöri 2024

Framboðsfresti til aðalstjórnar Lífeyrissjóðs bankamanna lauk 15. maí sl. og bárust sex  gild framboð innan frestsins, fjögurra karla og tveggja kvenna.

Rafræn kosning þriggja stjórnarmanna til aðalstjórnar hefst á vef sjóðsins kl. 17:00 miðvikudaginn 22. maí 2024 og stendur yfir til kl. 17:00 þriðjudaginn 28. maí 2024. Á þeim tíma munu sjóðfélagar einnig eiga þess kost að greiða atkvæði á skrifstofu sjóðsins á venjubundnum afgreiðslutíma.

Frambjóðendur eru eftirtaldir og hægt er að skoða kynningu á hverjum frambjóðenda með því að velja nafn viðkomandi:

Á ársfundinum fer jafnframt fram kosning þriggja stjórnarmanna til vara og teljast frambjóðendur til aðalstjórnar sem ekki ná kjöri einnig vera í kjöri til varastjórnar. Niðurstöður kosningar verða kynntar á ársfundinum skv. 2.5 gr. samþykkta.

Skulu stjórnarmenn lífeyrissjóða uppfylla 31. gr. laga nr. 129/1997 um starfsemi lífeyrissjóða. Þá þurfa stjórnarmenn að búa yfir nægilegri þekkingu og starfsreynslu sbr. 6. gr. reglna FME nr. 180/2013 og vera fjárhagslega sjálfstæðir sbr. 9. gr. reglna FME nr. 180/2013. Auk þess þurfa þeir að standast hæfismat hjá Fjármáleftirlitinu sbr. 16. gr. reglna FME nr. 180/2013. Þá er bent á grein sem birtist í vefriti Fjármálaeftirlitsins: Hverjir eiga erindi í stjórn lífeyrissjóðs?

Til baka í fréttir