24.04.2019
Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur um frávísun að hluta
Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurðaði í dag að vísa frá 3 af 4 kröfuliðum í máli Lífeyrissjóðs bankamanna gegn aðildarfyrirtækjum og íslenska ríkinu vegna Hlutfallsdeildar. Hins vegar var hafnað að vísa frá þriðju varakröfu sjóðsins um að viðurkennt verði að íslenska ríkið beri ábyrgð á lífeyrisskuldbindingum þeirra sjóðfélaga Hlutfallsdeildar sem voru starfsmenn Landsbanka Íslands.
Frávísunin byggir á því að kröfur lífeyrissjóðsins feli í sér nýja samningsgerð frekar en breytingu á samningi og 36. grein samningalaga nr. 7/1936 veiti dómstólum ekki svo víðtækt vald til að hlutast til um samningsgerð.
Stjórn Lífeyrissjóðs bankamanna mun á næstunni ákveða með mögulega kæru til Landsréttar eða önnur viðbrögð við úrskurðinum.