29.03.2019
Ársfundur 2019
Ársfundur Lífeyrissjóðs bankamanna verður haldinn þriðjudaginn 30. apríl næstkomandi kl. 17.15. Fundurinn verður haldinn á Icelandair Hotel Reykjavík Natura, Þingsal 2-3.
Dagskrá:
1. Venjuleg störf ársfundar skv. 6. gr. samþykkta sjóðsins
2. Tillögur til breytinga á samþykktum sjóðsins
3. Önnur mál
Tillögur til breytinga á samþykktum Lífeyrissjóðs bankamanna munu liggja frammi á skrifstofu sjóðsins að Skipholti 50b eigi síðar en viku fyrir ársfund. Einnig verður hægt að nálgast tillögurnar hér á vef sjóðsins.