Fréttir
2. nóvember 2006
Sjóðfélagafundur
Fundur sjóðfélaga í Hlutfallsdeild Lífeyrissjóðs bankamanna var haldinn fimmtudaginn 2. nóvember 2006. Á dagskrá var tillaga um heimild stjórnar sjóðsins til þess að ganga til samkomulags við aðildarfyrirtæki deildarinnar, vegna þess vanda sem hún stendur frammi fyrir. Friðbert Traustason, formaður stjórnarinnar, útskýrði vanda deildarinnar, tillöguna og framtíðarhorfur. Á annað hundrað manns sóttu fundinn og samþykktu þeir tillögu stjórnarinnar lítillega breytta með þorra greiddra atkvæða.
Tillaga stjórnarinnar sjá hér
Hlutverk sjóðsins.
Lífeyrissjóður bankamanna hefur það hlutverk að sjá sjóðfélögum, eftirlifandi mökum þeirra og börnum fyrir lífeyri samkvæmt ákvæðum samþykkta sjóðsins. Lífeyrissjóðurinn er sjálfstæð stofnun með eigin stjórn og undir opinberu eftirliti, eins og aðrir lífeyrissjóðir landsins. Deildir sjóðsins eru tvær, Hlutfallsdeild og Aldursdeild. Allir starfsmenn aðildarfyrirtækja sjóðsins, sem náð hafa 16 ára aldri, skulu vera sjóðfélagar og greiða iðgjöld til sjóðsins meðan þeir starfa hjá viðkomandi fyrirtæki.
Opnunartími
Opnunartími 9:15 - 16
Lífeyrissjóður bankamanna
Skipholti 50b
105 Reykjavík
Skoða á korti >>