Fréttir
23. maí 2006
Vextir útlána hækka
Stjórn Lífeyrissjóðs bankamanna hefur ákveðið að hækka vexti af lánum til sjóðfélaga í 4,6% frá og með 1. júní n.k. Vextirnir eru sem áður breytilegir, háðir ákvörðun stjórnar hverju sinni. Hægt er að velja um jafnar afborganir lána, eða jafngreiðslulán (annuitet). Hámarkslánstími er 30 ár. Lesið nánar um útlánareglur sjóðsins á síðunni hér til hægti, undir flýtileiðum.
Hlutverk sjóðsins.
Lífeyrissjóður bankamanna hefur það hlutverk að sjá sjóðfélögum, eftirlifandi mökum þeirra og börnum fyrir lífeyri samkvæmt ákvæðum samþykkta sjóðsins. Lífeyrissjóðurinn er sjálfstæð stofnun með eigin stjórn og undir opinberu eftirliti, eins og aðrir lífeyrissjóðir landsins. Deildir sjóðsins eru tvær, Hlutfallsdeild og Aldursdeild. Allir starfsmenn aðildarfyrirtækja sjóðsins, sem náð hafa 16 ára aldri, skulu vera sjóðfélagar og greiða iðgjöld til sjóðsins meðan þeir starfa hjá viðkomandi fyrirtæki.
Opnunartími
Opnunartími 9:15 - 16
Lífeyrissjóður bankamanna
Skipholti 50b
105 Reykjavík
Skoða á korti >>