
Fréttir
28. apríl 2022
Niðurstöður ársfundar 2022
Ársfundur Lífeyrissjóðs bankamanna var haldinn á Hilton Reykjavík Nordica þann 27. apríl slíðastliðinn og hófst hann kl. 17:00. Fundarstjóri var kjörinn Hinrik Greipsson og ritari fundarins var Pálmi Rögnvaldsson. Fundargerð ársfundarins verður hægt að nálgast á vef sjóðsins innan skamms.
Ari Skúlason, formaður stjórnar, flutti skýrslu stjórnar og fór yfir helstu þætti í starfsemi sjóðsins á síðasta ári. Þá kynnti Tryggvi Tryggvason, framkvæmdastjóri sjóðsins, ársreikning 2021 og fjárfestingarstefnur beggja deilda. Loks fór tryggingafræðingur sjóðsins, Bjarni Guðmundsson, yfir tryggingafræðilega stöðu beggja deilda lífeyrissjóðsins.
Kosið var í þrjú stjórnarsæti á fundinum og hlutu eftirtaldir einstaklingar kosningu: Ari Skúlason, Helga Jónsdóttir og Ingólfur Guðmundsson. Varamenn voru kjörnir í eftirfarandi röð: Sigurjón Gunnarsson, Kjartan Jóhannesson og Elín Dóra Halldórsdóttir. Í framhaldinu munu aðildarfyrirtæki lífeyrissjóðsins tilnefna þrjá einstaklinga til stjórnarsetu skv. 2. gr. samþykkta sjóðsins.
Hér má skoða glærur sem farið var yfir á fundinum.
Skoðunarmenn sjóðsins voru kjörin þau Guðrún Antonsdóttir og Þorsteinn Þorsteinsson.
Hlutverk sjóðsins.
Lífeyrissjóður bankamanna hefur það hlutverk að sjá sjóðfélögum, eftirlifandi mökum þeirra og börnum fyrir lífeyri samkvæmt ákvæðum samþykkta sjóðsins. Lífeyrissjóðurinn er sjálfstæð stofnun með eigin stjórn og undir opinberu eftirliti, eins og aðrir lífeyrissjóðir landsins. Deildir sjóðsins eru tvær, Hlutfallsdeild og Aldursdeild. Allir starfsmenn aðildarfyrirtækja sjóðsins, sem náð hafa 16 ára aldri, skulu vera sjóðfélagar og greiða iðgjöld til sjóðsins meðan þeir starfa hjá viðkomandi fyrirtæki.
Opnunartími
Opnunartími
Mán - fim: kl. 9:00 - 16:00
Föstudagar: kl. 9:00 - 15:00
Lífeyrissjóður bankamanna
Skipholti 50b, 105 Reykjavík
Skoða á korti >>