
Fréttir
25. mars 2021
Lokað verður fyrir heimsóknir á skrifstofu Lífeyrissjóðs bankamanna frá og með 25. mars vegna COVID-19
Vegna útbreiðslu COVID-19 og þeirra aðstæðna sem skapast hafa í samfélaginu vegna hennar hefur verið lokað fyrir heimsóknir á skrifstofu Lífeyrissjóðs bankamanna frá og með 25. mars. Sem fyrr sinnir starfsfólk áfram verkefnum sínum og þjónustu við sjóðfélaga. Er þetta gert með velferð sjóðfélaga og starfsfólks að leiðarljósi.
Sjóðfélagar eru beðnir um að sýna því skilning að afgreiðsla mála hjá lánadeild sjóðsins tekur lengri tíma en venjulega vegna mikils álags.
Á meðan á þessari lokun stendur hvetjum við alla til að nýta sér neðangreindar þjónustuleiðir:
Vefur sjóðsins: Á vef sjóðsins eru ítarlegar upplýsingar um lánamál, lífeyrisréttindi og annað sem varðar hagsmuni sjóðfélaga sem og samþykktir.
Sjóðfélagavefur: Þar er að finna allar upplýsingar um réttindi sjóðfélaga.
Símaþjónusta og tölvupóstur: Hægt er að hafa samband með tölvupósti lifbank@lifbank.is eða í síma 569-0900 milli kl.09:00 til 16:00 mánudaga til föstudaga.
Bréfpóstur: Póstkassi fyrir bréfpóst til sjóðsins er staðsettur á jarðhæð Skipholti 50b, 105 Reykjavík.
Reynt verður eftir fremsta megni að skerða þjónustu sem minnst en einnig er hægt að hafa beint samband við starfsmenn sjóðsins í gegn um síma milli kl. 09:00–16:00 eða tölvupóst eftir erindi:
Lífeyrir og lánamál Margrét Björk Jóhannsd. Sími:569-0902 margret@lifbank.is
Verðbréf og iðgjöld Hulda Björk Guðmundsd. Sími:569-0904 hulda@lifbank.is
Áhættustjóri Halldór Emil Sigtryggsson Sími:569-0903 halldor@lifbank.is
Framkvæmdastjóri Tryggvi Tryggvason Sími:569-0901 tryggvi@lifbank.is
Hlutverk sjóðsins.
Lífeyrissjóður bankamanna hefur það hlutverk að sjá sjóðfélögum, eftirlifandi mökum þeirra og börnum fyrir lífeyri samkvæmt ákvæðum samþykkta sjóðsins. Lífeyrissjóðurinn er sjálfstæð stofnun með eigin stjórn og undir opinberu eftirliti, eins og aðrir lífeyrissjóðir landsins. Deildir sjóðsins eru tvær, Hlutfallsdeild og Aldursdeild. Allir starfsmenn aðildarfyrirtækja sjóðsins, sem náð hafa 16 ára aldri, skulu vera sjóðfélagar og greiða iðgjöld til sjóðsins meðan þeir starfa hjá viðkomandi fyrirtæki.
Opnunartími
Opnunartími 9:15 - 16
Lífeyrissjóður bankamanna
Skipholti 50b
105 Reykjavík
Skoða á korti >>